Kolbrún Dröfn Ragnarsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Wise
Kolbrún Dröfn Ragnarsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Wise (Chief Revenue Officer, CRO). Hún mun leiða sölu- og markaðssvið félagsins með það að markmiði að styðja við vöxt og framtíðarsýn Wise á innlendum markaði.
Kolbrún kemur til Wise með víðtæka og farsæla reynslu af sölu- og markaðsstarfi, meðal annars hjá Frjálsri fjölmiðlun, Billboard og nú síðast Sýn. Þar gegndi hún lykilhlutverki í uppbyggingu teyma og stefnumótandi verkefnum á sviði sölu og tekjuöflunar. Hún er með MBA-gráðu frá Háskóla Íslands og lauk viðskiptafræði við Háskólann í Reykjavík.
„Wise er á fleygiferð inn í framtíðina og býður nú heildstætt lausnaframboð á sviði upplýsingatækni til að styðja viðskiptavini í þeirra stafrænu umbreytingu. Ég er mjög þakklát fyrir tækifærið og hlakka mikið til að taka þátt í þeirri spennandi þróun sem á sér stað hjá Wise,“ segir Kolbrún. „Félagið hefur byggt upp sterka stöðu sem traustur samstarfsaðili fyrirtækja og stofnana. Með frábæru teymi og skýrri framtíðarsýn ætlum við að byggja ofan á þá velgengni og keyra áfram ný tækifæri og vöxt.“
„Kolbrún hefur sterka innsýn í sölu- og markaðsstarf og í hvernig styðja megi við vöxt og betri upplifun viðskiptavina. Hún er mikilvæg viðbót við stjórnendateymið og kemur inn með mikla reynslu og kraft sem mun nýtast vel við að þróa enn frekar nálgun okkar gagnvart markaðnum og styrkja stöðu Wise til framtíðar,“ segir Jóhannes Helgi Guðjónsson, forstjóri Wise.
Tengjumst
Við skoðum þetta saman