Skip to main content Skip to footer

SmartPOS

Einföld sala og örugg afgreiðsla

SmartPOS er öflug, einföld og sveigjanleg skýjalausn fyrir þá sem vilja skilvirkt kassakerfi án flókins innleiðingarferlis. Lausnin tryggir að allar færslur skráist sjálfkrafa og veiti betri yfirsýn yfir söluflæðið. Hvort sem þú rekur verslun, einfaldan veitingastað eða þjónustufyrirtæki, þá hjálpar SmartPOS þér við að veita viðskiptavinum þægilega og örugga afgreiðslu.

Helstu eiginleikar SmartPOS

Skýjalausn með sjálfvirkum uppfærslum

Lausnin vinnur í rauntíma og öll gögn eru skráð sjálfkrafa. Sölufærslur fara beint í bókhaldskerfið, sem tryggir nákvæmni og dregur úr handavinnu.

Virkar fyrir hvaða rekstur sem er

SmartPOS hentar verslunum, veitingastöðum og þjónustufyrirtækjum og býður upp á sérsniðið viðmót. Kerfið býður upp á tengingu við Wise Wallet, ásamt öðrum veskislausnum og kerfum til að bæta yfirsýn og einfalda reksturinn.

Öruggar og hraðvirkar greiðslur

SmartPOS styður allar algengustu greiðslulausnir, sem tryggir að viðskiptavinir fá örugga og hraða þjónustu.

Einfalt að byrja

SmartPOS krefst lágmarks uppsetningar og getur verið tilbúið til notkunar samdægurs.

Hvernig virkar SmartPOS í daglegum rekstri?

Afgreiðsla byrjar

Hvort sem greitt er með peningum, korti, snertilausri greiðslulausn eða veskislausn, tekur SmartPOS við greiðslunni á öruggan og fljótlegan hátt.

Viðskiptavinur greiðir

Hvort sem greitt er með peningum, korti, snertilausri greiðslulausn eða veskislausn, tekur SmartPOS við greiðslunni á öruggan og fljótlegan hátt.

Allt fer sjálfkrafa í bókhaldið

Um leið og greiðslan er staðfest, fer sölufærslan sjálfkrafa í Business Central og því engin þörf á handvirkri skráningu.

Þú hefur fulla yfirsýn

Þú getur fylgst með sölutölum, birgðum og tekjum í rauntíma, hvar og hvenær sem er – hvort sem þú ert á skrifstofunni eða á ferðinni.

Taktu næsta skref með SmartPOS

Ertu að leita að einföldu, snjöllu og áreiðanlegu kassakerfi? SmartPOS er lausnin sem tryggir betri yfirsýn, hraðari afgreiðslu og öruggari greiðslur. Hafðu samband og bókaðu kynningu í dag!

Tengjumst

Við skoðum þetta saman

Ertu með fyrirspurn eða ábendingu til okkar?
Endilega sendu okkur línu og við leysum málið.