Skip to main content Skip to footer

Rekstrarþjónusta Wise

Rekstrarþjónusta eftir þínum þörfum

Frá netkerfum og skýjaþjónustu til rekstrar á viðskiptakerfum og afritunar – við sjáum um tæknina svo þú getur einbeitt þér að rekstrinum.

Allur rekstur upplýsingatækni á einum stað

Allt á einum stað

Fyrirsjáanlegur kostnaður og sveigjanleg þjónusta

Fyrirsjáanlegur kostnaður

Aðgangur að reynslumiklum sérfræðingum

Tölvudeildin þín

Samræmi við öryggisstaðla, ISO, NIS2 og DORA

Öryggisstaðlar

Skalanleg þjónusta sem vex með þínu fyrirtækinu

Vöxum með þér

Möguleiki á 24/7 vöktun og viðbragðsþjónustu

Við erum á vaktinni

Hvað getum við séð um fyrir þitt fyrirtæki?

Við eigum sérfræðinga á öllum sviðum upplýsingatækni

Hýsingar og skýjaþjónustur

Örugg, aðgengileg og sveigjanleg þjónusta

Við bjóðum upp á rekstur sýndarumhverfa, víðneta og skýjalausna, auk hýsingar í gagnaverum í Reykjavík og á Akureyri. Þar að auki sjáum við um gagnageymslur, afritun og aðra stoðþjónustu sem tryggir öruggt og sveigjanlegt rekstrarumhverfi.

Rekstur útstöðva

Stuðningur við starfsstöðvar og notendur

Við aðstoðum við rekstur útstöðva á öllum stigum – frá uppsetningu starfsstöðva og stuðningi við notendur, til reksturs verslunarkassa og viðskiptakerfa eins og Business Central ofl. Þjónustan felur einnig í sér reglulegar uppfærslur, afritun gagna, fjaraðgang, samvinnu við ráðgjafa Wise og vettvangsþjónustu eftir þörfum.

Rekstur netbúnaðar

Rekstur og öryggi í fyrirrúmi

Við sjáum um daglegan rekstur og reglulegar uppfærslur á netbúnaði, auk vöktunar í eftirlitskerfi, bilanagreiningar, skjölunar og viðbragð. Markmiðið er að tryggja stöðugt aðgengi, hámarksöryggi og áreiðanleika.

Rekstur netþjóna

Öflug þjónusta með áherslu á áreiðanleika og frammistöðu

Við tryggjum öruggan og skilvirkan rekstur netþjóna með vöktun, afkastastýringu, reglulegum uppfærslum, fyrirbyggjandi öryggis- og rekstraraðgerðum og endurheimtaprófunum. Þjónustan nær einnig yfir gagnagrunnsrekstur og afritun.

Er ekki kominn tími til að sameina þjónustuna og hagræða í rekstrinum?

Taktu næsta skref í átt að öruggari og skilvirkari rekstri.

Hver er ávinningurinn fyrir þitt fyrirtæki?

Fyrsta flokks rekstrarþjónusta eftir þínum þörfum

Rekstrar- og öryggisúttektir

Alhliða yfirferð á núverandi umhverfi, þar sem við greinum tækifæri og möguleika til að stuðla að öruggum og hagkvæmum rekstri til framtíðar.

Fyrirsjáanlegur kostnaður

Með föstum mánaðarlegum kostnaði færðu betri yfirsýn og tryggðan aðgang að sérfræðingum á öllum sviðum.

Öryggi í fyrirrúmi

Með reglulegri vöktun, öryggisuppfærslum og samræmi við helstu staðla eins og ISO 27001 og NIS2 tryggjum við lágmarkaða áhættu og hámarksvernd fyrir gögn og rekstur.

Þjónusta og viðbragð

Við bjóðum fyrsta stigs þjónustuver með sérþekkingu á bæði almennum notendastuðningi og lausnum eins og Business Central. Ef þörf krefur mætum við á staðinn og tryggjum áframhaldandi samfellu og öryggi með nánu samstarfi og eftirfylgni.

NIS2 og DORA

„Það sem skiptir máli er að bregðast við áður en það er orðið of seint“

Nýjar evrópskar reglur um netöryggi og rekstraröryggi NIS2 og DORA munu hafa áhrif á fjölda fyrirtækja og stofnana á Íslandi. En hvað fela þessar reglugerðir í sér, og hver ætti að hafa áhyggjur? Við settumst niður með Benedikt Rúnarssyni, öryggisstjóra (CISO) hjá Wise, til að fá svör við helstu spurningum.

Tengjumst

Við skoðum þetta saman

Ertu með fyrirspurn eða ábendingu til okkar?
Endilega sendu okkur línu og við leysum málið.