Kaffitími í Sveitinni
Sveitarfélagateymið kynnir nýjung sem við köllum Kaffitími í Sveitinni.
Annan hvern þriðjudag kl. 11.00 fram að sumri höldum við stuttar 15-30 mín. vefkynningar á hinum ýmsu nýjungum og virkni í Sveitarfélagalausnum Wise.
Þátttakendum gefst einnig tækifæri til að taka þátt og spyrja spurninga um hin ýmsu mál sem við tökum fyrir í nýjustu útgáfu Sveitarfélagalausna Wise.
Við byrjum næstkomandi þriðjudag, 24. febrúar kl. 11.
Þeir sem skrá sig fá sent fundarboð á þessa fundarseríu fram að sumri.
Gott að hafa í dagatalinu en svo er það að sjálfsögðu valkvætt að mæta.
Hlökkum til að sjá sem flesta!
Tengjumst
Við skoðum þetta saman