Skip to main content Skip to footer

7. sept.: BC agents námskeið

BC Agents – hagnýt notkun gervigreindar í Business Central

49.900 kr án vsk
📅 7. sept🕘 13:00–16:00📍 Ofanleiti 2
Námskeiðið er ætlað notendum og ráðgjöfum sem vinna með Dynamics 365 Business Central og vilja nýta gervigreind og Agents til að einfalda ferla, bæta yfirsýn og auka virði gagna í daglegum rekstri. Farið er yfir hvernig BC Agents og Copilot í Business Central nýtast í raun — frá fyrirspurnum og greiningu yfir í sjálfvirknivæðingu og stuðning við ákvarðanatöku.
Efnisyfirlit:
  • Yfirlit: Copilot & Agents í Business Central — Hvað geta BC Agents gert í dag? Staða Copilot í Business Central og hvernig þetta breytir vinnulagi notenda.
  • Hagnýt notkun í rekstri — Notkun Agents fyrir fjárhag, innheimtu, birgðastýringu, sölu og innkaup. Spurningar á náttúrulegu máli, skýringar á frávikum og innsýn í gögn.
  • Sjálfvirknivæðing ferla — Dæmi um hvernig Agents vinna með Business Central gögnum ásamt Power Automate til að styðja við endurtekna ferla og viðvaranir.
  • Gagnatengingar og öryggi — Hvernig Agents nota gögn í Business Central, hvað er leyfilegt, aðgangsstýringar og ábyrg notkun gervigreindar í ERP-umhverfi.
  • Næstu skref og framtíðarsýn — Hvað er í þróun hjá Microsoft? Hvernig geta fyrirtæki undirbúið sig fyrir aukna sjálfvirkni með Agents í BC.
Að námskeiði loknu getur þú:
  • Nýtt Copilot og Agents í Business Central til daglegrar greiningar og rekstrarstuðnings
  • Spurt flókinna spurninga á mannamáli og fengið svör byggð á raungögnum
  • Skilið hvernig Agents geta stutt sjálfvirknivæðingu ferla í BC
  • Metið hvar gervigreind skilar mestum ávinningi í þínu ERP-umhverfi
Skráning
Tryggðu þér sæti
Hagnýtt hálfsdagsnámskeið um BC Agents og Copilot í Business Central — frá fyrirspurnum og greiningu yfir í sjálfvirknivæðingu og ákvarðanastuðning.
Staðsetning
Ofanleiti 2 (Wise lausnir ehf.)
Innifalið
Kaffiveitingar
Kröfur
Fartölva · grunnþekking á Business Central æskileg · heimildir í BC til að vinna með Agents · aðgangur að Sandbox-umhverfi
Takmörkuð pláss – tryggðu þér sæti í dag.

Skráning á námskeið

Án bandstriks
Nafn fyrirtækis/greiðanda
Án bandstriks
Ertu með Microsoft 365 Copilot leyfi í dag? *

Tengjumst

Við skoðum þetta saman

Ertu með fyrirspurn eða ábendingu til okkar?
Endilega sendu okkur línu og við leysum málið.