Skip to main content Skip to footer

Jafnréttisstefna

2020-2022

 

Wise Lausnir ehf. (Wise) stuðlar að jafnrétti og vinnur eftir jafnréttisstefnu og aðgerðaráætlun jafnréttismála, samkvæmt lögum um jafnan rétt og jafna stöðu kvenna og karla nr. 10/2008.  
Markmið og metnaður Wise felst í að allir starfsmenn skuli njóta jafnréttis í starfi sínu fyrir fyrirtækið, óháð kyni, uppruna, trú og aldri og að hver starfsmaður verði metinn og virtur að verðleikum á eigin forsendum. Stjórnendur Wise skulu fylgja jafnréttisstefnu fyrirtækisins og vinna að auknu jafnrétti innan þess. Jafnréttisstefna Wise er rýnd og yfirfarin árlega.

 

Markmið

 

Markmið jafnréttisstefnu er að stuðla að jafnri stöðu kynja og að tækifæri einstaklingsins verði jöfn óháð kynferði, uppruna, trú eða aldri. Einnig að koma í veg fyrir kynbundinn launamun og þannig stuðla að því að Wise sé eftirsóttur vinnustaður í huga allra óháð kyni. Yfirstjórn Wise ber ábyrgð á að skilgreina stefnu fyrirtækisins. Framkvæmdastjóri fjármála ber ábyrgð á innleiðingu, umbótum og hlítingu á settum viðmiðum, sem og að tryggja að stjórnendur þekki stefnuna og uppfylli öll skilyrði hennar. 

 Megin markmið Wise í jafnréttismálum eru eftirfarandi:  

  • Ákvörðun launa og annarra starfskjara skal ekki fela í sér kynjamismunun  
  • Laus störf skulu standa öllum opin.   
  • Skipulag vinnutíma skal vera fyrirsjáanlegt svo hægt sé að samhæfa starf og fjölskyldulíf.  
  • Að hvetja og ýta undir að bæði kyn nýti þann rétt sem þau eiga til foreldra og   
    fæðingarorlofs og leyfis vegna veikinda barna.  
  • Starfsþróun og framgangur í starfi skal vera óháður kyni.  
  • Öll starfsþjálfun, sí- og endurmenntun skal vera aðgengileg báðum kynjum.  
  • Einelti, kynbundið ofbeldi, kynbundin- og kynferðisleg áreitni er ekki liðin hjá Wise.  
  • Fræðsla og námskeið skulu standa til boða þeim sem vinna úr og taka á móti   
    kvörtunum starfsfólks vegna kynbundins ofbeldis, kynbundinnar eða kynferðislegrar áreitni.  
  • Allt starfsfólk sé upplýst um viðhorf fyrirtækisins í eineltismálum, vegna fordóma, kynbundins ofbeldis og kynferðislegs árietis. 


Jafnréttisstefna Wise var samþykkt af Jafnréttisstofu 10. september 2020. Áður hafði stefnan verið samþykkt af framkvæmdastjórn.