Námskeiðið WiseFish Útgerð er ætlað fyrir byrjendur og almenna notendur í WiseFish. Farið er ýtarlega yfir skráningu afla í veiðiferð og uppsetningu helstu stofngagna sem tengjast aflaskráningu. Einnig farið yfir helstu hliðarferla; s.s. forsendur sjómannalauna, ráðstöfun landaðs afla til vinnslu/fiskmarkað.
Meðal þeirra sem hafa gagn af námskeiðinu eru skráningaraðilar, úrvinnsluaðilar, launafulltrúar, útgerðarstjórar.
Námskeiðinu er stjórnað af sérfræðingum Wise og fá þátttakendur í hendur nauðsynleg námsgögn.
Námskeiðið er kennt í fjarnámi.
Kennt er á Microsoft Dynamics 365 Business Central 14 í Microsoft Teams.
Markhópur: Gagnlegt öllum notendum WiseFish Útgerðar.
Forkröfur: Grunnþekking á Windows stýrikerfinu.
Fjöldi tíma: Kennt er í 1 skipti, 3 klst.
Námskeiðið í hnotskurn:
- Stofngögn í WiseFish Útgerð.
- Aflaskráning í veiðiferð.
- Forsendur sjómannalauna í veiðiferð.
- Uppgjörsforsendur á skipaspjaldi og í veiðiferð.
- Ráðstöfun afla frá útgerð til landvinnslu/fiskmarkað.
- Sjóðir fiskiskipa.
- Helstu yfirlit og skýrslur.
Helsti ávinningur þátttakenda:
Þátttakendur öðlast heildaryfirsýn yfir notkunarmöguleika kerfisins, skilning á flæði upplýsinga milli kerfishluta og tilgang hinna ýmsu aðgerða sem kerfið bíður upp á. Þátttakendur kynnast jafnframt helstu uppsetningaratriðum fyrir útgerð og sjómannauppgjör; t.a.m. á skipum, vörum (hráefni og afurðum) og ýmsum stofngögnum; s.s. veiðarfærum, löndunarhöfnum, löndunartegundum, skiptaprósentum o.fl.
Wise áskilur sér rétt til að breyta dagskrá námskeiða án fyrirvara.