Fyrir notendur Launakerfis Wise í Business Central er þetta kjörið námskeið. Þátttakendur læra m.a. að stofna launþega, tengja hann við starf, kjarasamninga, sjóði, félög o.sfrv. Farið er í gegnum launavinnslu, allt frá stofnun launþega til bókunar í fjárhag.
Námskeiðið er sniðið að þeim sem eru að vinna með Launakerfi Wise í Business Central og veitir góða innsýn inn í þá möguleika sem kerfið hefur upp á að bjóða.
Námskeiðið er kennt af sérfræðingum Wise sem hafa mikls reynslu í ráðgjöf og þjónustu við Navision, Microsoft Dynamics NAV og 365 Business Central.
Námskeiðið er kennt í fjarnámi.
Kennt er á Microsoft Dynamics 365 Business Central 14 í Microsoft Teams.
Markhópur: Er ætlað þeim sem sjá um launaútreikninga.
Forkröfur: Grunnþekking á Windows stýrikerfinu og fjárhagsbókhaldi, ásamt grunnþekkingu á Business Central (NAV).
Fjöldi tíma: Kennt er í 2 skipti, 3 klst.
Wise áskilur sér rétt til að breyta dagskrá námskeiða án fyrirvara.
Hægt er að senda fyrirspurnir varðandi námskeið á namskeid@wise.is
Námskeiðið í hnotskurn:
- Viðmót og umhverfi Launakerfis NAV 2018
- Stofnun launþega og starfa
- Stofnun tegunda og kröfuaðila
- Stofnun og hækkun kjarasamninga og launataxta
- Útreikning launa og útprentanir á launaseðlum
- Skilagreinar / skýrslur / rafræn skil
- Leit, afmörkun og röðun
- Fastar bækur
- Hvernig viðskipti eru sótt
- Bakfærslur og leiðréttingar
- Tenging við fjárhagsbókhald
Helsti ávinningur þátttakenda:
Að kynnast umhverfi og notendaviðmóti Launakerfisins. Læra notkun flýtilykla og afmarkana til að flýta fyrir vinnu og gera hana þjálli. Læra hvernig bæta á við tegundum, sjóðum, töxtum og fleira. Læra að taka út skilagreinar og hinar ýmsu skýrslur og hvernig haga beri bakfærslum og leiðréttingum. Öðlast skilning á því hvernig laun eru meðhöndluð á mismunandi hátt eftir störfum. Á námskeiðinu er farið í raunhæf verkefni sem auka skilning þátttakenda. Í lok námskeiðs ættu þátttakendur að hafa öðlast aukið öryggi í notkun Launabókhalds Wise í Microsoft Dynamics 365 Business Central
Wise áskilur sér rétt til að breyta dagskrá námskeiða án fyrirvara.