Kerfið í hnotskurn
- Fljótleg og þægileg lausn til að vinna uppgjör
- Öll tilskilin yfirlit fylgja kerfinu
- Hægt er að bæta við eigin yfirlitum
- Veitir góða yfirsýn yfir stöðu fyrirtækja
- Eykur áreiðanleika
- Hægt að bóka færslur beint í uppgjörskerfið
- Einfaldar samanburð milli tímabila
- Flýtir uppgjörsvinnu bókara og fjármálastjóra

Sérlausn fyrir Business Central
Uppgjörskerfi Wise gerir fyrirtækjum kleift að vinna uppgjör á einfaldan og fljótlegan hátt í Microsoft Dynamics 365 Business Central (NAV). Lausnin veitir góða yfirsýn yfir stöðu fyrirtækisins og birtir rekstraryfirlit, efnahagsreikning og sjóðstreymi ásamt helstu lykiltölum.
Uppgjörskerfið skilar eftirfarandi yfirlitum:
Rekstrarreikningi
Efnahagsreikningi
Sjóðstreymi
Lykiltölum

Aukinn áreiðanleiki og styttra uppgjörsferli
Hvert uppgjör er vistað og aðgengilegt notendum eftir þörfum. Hægt er að bóka færslur beint í uppgjörskerfið án þess að þær fari í bókhaldið sem eykur sveigjanleika. Með notkun Uppgjörskerfis Wise er auðvelt að koma auga á misræmi sem eykur áreiðanleika og styttir uppgjörsferlið.