Kerfið í hnotskurn
-
Öflug viðbót við Innheimtukerfið
- Allar opnar viðskiptamannafærslur sem komnar eru fram yfir eindaga, verða til sem kröfur og koma fram á Yfirliti krafna
- Á Innheimtukröfuspjaldi er hægt að skoða hverja kröfu fyrir sig, meðhöndla og stilla af ferla
- Á Aðgerðarlista er hægt að skilgreina innheimtuferla með tímasettum aðgerðum og kostnaði
- Innheimtuferil er hægt að tengja við kröfu og koma aðgerðirnar tímasettar á aðgerðalistann

Bættu sjóðstreymi
Víða leynast ógreiddar kröfur t.d. kröfur sem dagað hafa uppi í boðgreiðslum. Einnig finnast viðskiptamannafærslur sem á eftir að jafna.
Með Kröfuvöktun Wise sem er viðbót við Innheimtukerfið, er sveitarfélögum gert kleift að skoða allar vanskilakröfur sínar, koma þeim í ferli og meðhöndla.
Yfirlit krafna
Á Yfirliti krafna birtast allar viðskiptamannafærslur sem komnar eru fram yfir eindaga. Hægt er að tengja Innheimtuferla við kröfur og koma aðgerðirnar tímasettar inn á aðgerðalistann.
Öflug greining krafna
Á Yfirliti krafna er hægt að greina kröfur eftir viðskiptareikningum,
bókunarflokkum, dagsetningum o.s.frv.
Skilgreindir innheimtuferlar
Hægt er að tengja kröfurnar við Innheimtuferla, jafna færslur, sameina margar kröfur í eina, búa til aðgerð á aðgerðarlistann o.fl.
Yfirsýn og eftirfylgni krafna
Kerfið auðveldar yfirsýn á vangreiddum kröfum og innheimtuaðgerðum, einnig hjálpar það til við tiltekt, s.s. að loka ójöfnuðum viðskiptamannafærslum. Með hjálp Aðgerðarlistans er hægt að fylgja kröfum þétt eftir.